Háskólinn á Hólum Arnar Máni og Thelma Dögg verðlaunuð

  • 8. júní 2024
  • Fréttir

Arnar Máni og Thelma Dögg með viðurkenningar sínar. Myndir: Sigurður Bogi Sævarsson, Mbl.

Árleg reiðsýning verðandi útskriftarnema frá Háskólanum á Hólum

Árleg reiðsýning verðandi útskriftarnema frá hestafræðideildinni á Háskólanum á Hólum var haldin laugardaginn, 20. maí. Eins og venja er fór verðlaunaafhending fram og nemendurnir klæddust hinum bláu FT-jökkum.

Sýningin tókst vel og nemendurnir sem sjálfir sáu um skipulagningu og undirbúning hennar stóðu sig með prýði. Þeir riðu um á bæði skólahestum og hestum á eigin vegum sem þeir hafa haft í náminu. Að lokinni sýningu var stór stund þegar hver og einn nemandi gekk fram og klæddist bláum FT-jakka.

Tveir nemendur hlutu FT skjöldinn

Tvenns konar verðlaun voru veitt. FT-skjöldurinn og Morgunblaðshnakkurin. FT-skjöldurinn er veittur fyrir hæstu einkunn lokaverkefnis í reiðmennsku en að þessu sinni voru tveir nemendur jafnir og voru því tveir FT-skildir afhentir. Það voru þau Thelma Dögg Tómasdóttir og Arnar Máni Sigurjónsson sem voru hlutskörpust og hnífjöfn að stigum fyrir verkefni sín. Þórarinn Eymundsson, varaformaður FT afhenti verðlaunin.

Arnar Máni efstur í verklegum áföngum

Morgunblaðshnakkinn hlýtur sá nemandi sem stendur efstur í verklegum áföngum brautarinnar yfir öll árin og er þar vegið meðaltal áfanganna sem reiknast. Arnar Máni Sigurjónsson stóð efstur með einkunnina 9,29 en það var Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, sem veitti honum verðlaunin.

Nemendur stilltu sér upp til myndatöku, bæði á vellinum og við kirkjuna með skólahúsið í baksýn áður en þeir mættu með aðstandendum sínum til kaffisamsætis. Formleg útskrift var síðan í gær, 7.júní, en þá útskrifast nemendur allra brauta Háskólans á Hólum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar