Árni Björn og Flaumur Íslandsmeistarar
Árni Björn Pálsson sigraði fjórgang meistara á Flaumi frá Sólvangi en þeir hlutu m.a. eina 10,0 fyrir sýningu á stökki. Heildareinkunn þeirra er 8,43 og má segja að þeir hafi sigrað þessi glæsilegu úrslit með yfirburðum.
Í öðru sæti varð Ásmundur Ernir Snorrason og Frægur með 7,87. Hástökkvarinn í fjórgangi er Ragnhildur Haraldsdóttir og Vákur frá Vatnsenda en þau sigruðu b-úrslitin í gækvöldi og enduðu í þriðja sæti her í a-úrslitum með 7,83 í einkunn.
Nú er matarhlé hér á Íslandsmóti og svo heldur veislan áfram
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Árni Björn Pálsson / Flaumur frá Sólvangi 8,43
2 Ásmundur Ernir Snorrason / Frægur frá Strandarhöfði 7,87
3 Ragnhildur Haraldsdóttir / Vákur frá Vatnsenda 7,83
4 Jakob Svavar Sigurðsson / Hálfmáni frá Steinsholti 7,80
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Óskar frá Breiðstöðum 7,77
6 Elin Holst / Frami frá Ketilsstöðum 7,70
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH