Aron Einar og Hilmir Páll keppa til A-úrslita í gæðingakeppni
Aron Einar sigurvegari B-úrslita í barnaflokki við hlið hans standa Berglind Sveinsdóttir formaður Sleipnis og Anna Björg Níelsdóttir gjaldkeri Sleipnis. Ljósmyndir: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Í dag, laugardaginn 25.júlí, er sannkallaður B-úrslita dagur á Íslandsmóti barna og unglinga því B-úrslit í hinum ýmsu keppnisgreinum eru framan af degi en keppnisdagskrá lýkur svo með 100 metra skeiði sem hefst klukkan 17:30. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.
Fyrir hádegi í dag fóru fram B-úrslit í gæðingakeppni bæði í barna- og unglingaflokki.
Í barnaflokki var það Aron Einar Ólafsson sem hæsta einkunn hlaut, 8,72. Hestur hans er Skandall frá Varmalæk og mæta þeir því til A-úrslita á morgun. Í unglingaflokki vann sér þátttökurétt í A-úrslitum Hilmir Páll Hannesson á Grími frá Skógarási en jöfn honum var Jórunn Edda Antonsdóttir á Jaðri frá Hvolsvelli bæði með 8,64, en Hilmir Páll var hærri á þriðja aukastaf.
*Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um sigur Hilmis í B-úrslitum í unglingaflokki
Niðurstaða B-úrslita í barnaflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 8 | Aron Einar Ólafsson / Skandall frá Varmalæk 1 | 8,72 |
| 9 | Líf Einarsdóttir Isenbuegel / Mánasteinn frá Hafnarfirði | 8,65 |
| 10 | Bryanna Heaven Brynjarsdóttir / Saga frá Dalsholti | 8,61 |
| 11 | Dagur Snær Agnarsson / Barón frá Hafnarfirði | 8,57 |
| 12 | Viktoría Huld Hannesdóttir / Rúbín frá Ási 2 | 8,55 |
| 13 | Sara Margrét Holaker Hauksdóttir / Sæld frá Skáney | 8,51 |
| 14 | Birna Rós Steinarsdóttir / Alma frá Breiðholti í Flóa | 8,48 |
| 15 | Sigurey María Eyjalínardóttir / Herkúles frá Kolsholti 2 | 8,47 |

B-úrslitaknapar í barnaflokki á baki hestum sínum
Niðurstaða B-úrslita í unglingaflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 8-9 | Hilmir Páll Hannesson / Grímur frá Skógarási | 8,64 |
| 8-9 | Jórunn Edda Antonsdóttir / Jaðar frá Hvolsvelli | 8,64 |
| 10 | Sigríður Fjóla Aradóttir / Meistari frá Hafnarfirði | 8,62 |
| 11 | Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Höfn frá Kagaðarhóli | 8,60 |
| 12 | Aron Dyröy Guðmundsson / Ísafold frá Kirkjubæ | 8,59 |
| 13 | Elísabet Emma Björnsdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri | 8,56 |
| 14 | Hjördís Antonía Andradóttir / Gjöf frá Brenniborg | 8,55 |
| 15 | Hrefna Kristín Ómarsdóttir / Dáðhugi frá Álfhólum | 8,52 |

B-úrslitaknapar í unglingaflokki á baki hestum sínum
Laugardagur 25. júlí
10:00 B-úrslit Barnaflokkur Gæðinga
10:40 B-úrslit Unglingaflokkur Gæðinga
11:20 Matur
12:00 B-úrslit V2 Barnaflokkur
12:30 B-úrslit V1 Unglingaflokkur
13:00 B-úrslit Gæðingatölt Barnaflokkur
13:30 B-úrslit Gæðingatölt Unglingaflokkur
14:00 B-úrslit T4 Barnaflokkur
14:50 Kaffihlé
15:15 B-úrslit T4 Unglingaflokkur
15:40 B-úrslit F2 Unglingaflokkur
16:15 B-úrslit T3 Barnaflokkur
16:40 B-úrslit Tölt T1 Unglingaflokkur
17:10 Kaffihlé
17:30 100 m skeið
18:15 Grill fyrir keppendur
Hæst dæmdi hestur í heimi
Mjótt á munum í unglingaflokknum