Árshátíð Sleipnis
Hluti af verðlaunahöfum Sleipnis
Um síðustu helgi fór árshátíð hestamannafélagsins Sleipnis fram í Hvíta Húsinu á Selfossi, en 90 ára afmæli hestamannafélagsins var fagnað við sama tækifæri. Á hátíðinni voru veitt verðlaun og einstök afrek heiðruð s.s. íslandsmeistarar félagsins og bestu tímar ársins í skeiði.
Eftirfarandi aðilar hlutu viðurkenningu á árshátíðinni
Knapi ársins: Olil Amble
Íþróttaknapi ársins: Olil Amble
Gæðingaknapi ársins: Helgi Þór Guðjónsson
Æskulýðsbikar Sleipnis: Védís Huld Sigurðardóttir
Félagar ársins: Ingibjörg Stefánsdóttir og Sigurvaldi R. Hafsteinsson
Íslandsmeistarar ársins:
Olil Amble – Íslandsmeistari í fimmgangi
Sigursteinn Sumarliðason – Íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum
Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir – Íslandsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum ungmenna
Glódís Rún Sigurðardóttir – Íslandsmeistari í tölti unglinga
Védís Huld Sigurðardóttir – Íslandsmeistari í fjórgangi, fimi og stigahæsti knapi í unglingaflokki
Bestu tímar ársins í skeiði:
250 metra skeið: Krókus frá Dalbæ; 22,03 sekúndur. knapi: Sigursteinn Sumarliðason
150 metra skeið: Blikka frá Þóroddsstöðum; 14,45 sekúndur. Knapi: Glódís Rún Sigurðardóttir
100 metra skeið: Krókus frá Dalbæ; 7,53 sekúndur. Knapi: Sigursteinn Sumarliðason
Ræktunarbikar Sleipnis: fá Páll Stefánsson og Edda Björk Ólafsdóttir Stuðlum og Haukur Balvinsson og Ragnhildur Loftsdóttir Austurási fyrir Draupni frá Stuðlum sem er hæst dæmdi hestur ársins í eigu Sleipnisfélaga.
Heiðursfélagar: Jón S. Gunnarsson og Haraldur Þórarinsson