Meistaradeild KS í hestaíþróttum Ársmiði KS deildarinnar kominn í sölu

  • 10. febrúar 2022
  • Fréttir
Dregið úr seldum ársmiðum þar sem folaltollar eru í verðlaun

Meistaradeild KS er mótaröð 6 móta þar sem keppt er í 8 greinum frá mars-maí 2022. Markmið deildarinnar er að auka áhuga á hestaíþróttum en keppendur eru úrval bestu hestaíþróttamanna Íslands. Keppnin í ár fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og hefst hún 2. mars á fjórgangi.

Ársmiðar á Meistaradeild KS eru komnir í sölu og hægt er að panta á facebook síðu deildarinnar í gegnum skilaboð. Verð á miðanum er 7.500kr

Í vetur verður dregið úr seldum ársmiðum þar sem folaltollar eru í verðlaun! Ekki missa af Meistaradeild KS í vetur, komið á staðinn og fáið stemminguna beint í æð.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link