Ársmiði Meistaradeildarinnar kominn í sölu
Meistaradeildin í hestaíþróttum er mótaröð sex móta sem fer fram frá 27. janúar til 9. apríl þar sem keppt er í átta greinum. Keppendur eru meðal úrval bestu hestaíþróttamanna landsins. Keppnin fer fram með u.þ.b hálfsmánaðar millibili í bestu reiðhöllum sem í boði eru.
Ársmiðar á Meistaradeildina eru komnir í sölu á tix.is en stakir miðar á keppniskvöldin verða ekki í boði.
Ársmiðinn gildir einnig sem happadrættismiði en á lokahátíð deildarinnar í apríl verður dregið úr 10 veglegum vinningum. Það er númerið á miðanum sem gildir.
Dagskrá 2022
27. janúar kl. 19 – Fjórgangur – Ingólfshvoll
10. febrúar kl. 19 – Slauktaumatölt – TM höllin
25. febrúar kl. 19 – Fimmgangur – Samskipahöllin
18. mars kl. 19 – Gæðingafimi – Ingólfshvoll
26. mars kl. 13 – Gæðingaskeið og 150m skeið – Selfoss
9. apríl kl. 14 – Tölt og 100m skeið – lokahátíð – Ingólfshvoll
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum