Artemisia og Óskar stjörnur kvöldsins-
Æsispennandi úrslit í fjórgangi lauk með einvígi milli liðsmanns Hrímnis, Artemisiu Bertus á Óskar frá Blesastöðum 1A og liðsmanns Top Reiter/Ármóts Þorvaldar Árna Þorvaldssonar á Segli frá Flugumýri II.
Artemisia og Óskar voru langefst eftir glæsilega mjúka og fasmikla sýningu á hægu tölti, hlutu 8,33. En eftir því sem leið á úrslitin nálguðust Þorvaldur og Segull toppinn og voru þau jöfn þegar að lokaþætti úrslitana var komið, hraða töltinu. Þar mörðu Artemisia og Óskar hins vegar sætan sigur, hlutu 7,70 í lokaeinkunn. Þorvaldur og Segull fengu silfur og Jakob Svavar Sigurðsson varð þriðji á Asa frá Lundum II.
Ólafur Ásgeirsson, liðsmaður Spóns.is, fór með sigur af hólmi í B-úrslitum fjórgangs á Andvarasyninum Hugleik frá Galtanesi. Hlutu þeir í lokaeinkunn 7,47. Áhorfendur virtust sammála dómurum og fögnuðu þegar úrslitin voru ljós.
Lið Top Reiter/ Ármóts hlutu titilinn Fjórgangslið Meistaradeildar 2012.
Hver er Óskar?
Óskar frá Blesastöðum 1A vakti mikla athygli sumarið 2009 þegar hann var sýndur í kynbótadómi en hann hlaut 8,22 í aðaleinkunn og þar af 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja/geðslag og fegurð í reið og 9,5 fyrir hægt tölt og stökk. Óskar er undan Töfra frá Kjartansstöðum og Váksdótturinni Dúfu frá Skeiðháholti en hryssur undan Vák hafa verið að gera það gott í ræktun. Skemmtileg staðreynd: Sigurvegari síðasta árs, Loki frá Selfossi er einmitt undan Váksdóttur, Surtlu frá Brúnastöðum. Loki og Sigurður Sigurðarson luku keppni í 6. sæti að þessu sinni.
Úrslit:
- Artemisia Bertus Hrímnir Óskar frá Blesastöðum 1A 7.70
- Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Segull frá Flugumýri II 7,60
- Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Asi frá Lundum II 7,53
- Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal 7,37
- Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Hugleikur frá Galtanesi 7,27
- Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi 7,07
- Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Ketill frá Kvistum, 7,17
- Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót GLaðdís frá Kjarnholtum I, 7,10
- Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Hængur frá Hæl
- Viðar Ingólfsson Hrímnir Vornótt frá Hólabrekku, 6,93
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH