Ásmundur Ernir og Grafík efst

  • 15. ágúst 2012
  • Fréttir
Ásmundur Ernir og Grafík efst

Hér koma niðurstöður úr fimmgangi ungmenna en efstur er Ásmundur Ernir Snorrason á Grafík frá Búlandi með einkunnina 6,83. Á eftir honum eru Íslandsmeistararnir Arnar Bjarki Sigurðsson og Arnar frá Blesastöðum með einkunnina 6,80 og þriðji er Teitur Árnason á Gamm frá Skíðbakka með einkunnina 6,80.

Ásmundur Ernir keppti á Grafík á Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna og enduðu þau fjórðu eftir forkeppni í fimmgangi ungmenna. Ásmundur var með tvo hesta í úrslitum, Grafík og Hvessi frá Ásbrú, og ákvað að taka Hvessi í staðin fyrir Grafík. Hvessir og Ásmundur enduðu í 6. sæti í a úrslitunum. Spennandi er að sjá hvað Ásmundur og Grafík gera í úrslitunum en þar verður eflaust hart barist.

Niðurstöður úr forkeppni í fimmgangi ungmenna:

Sæti   Keppandi

1   Ásmundur Ernir Snorrason / Grafík frá Búlandi 6,83
2   Arnar Bjarki Sigurðarson / Arnar frá Blesastöðum 2A 6,80
3   Teitur Árnason / Gammur frá Skíðbakka III 6,77
4   Sara Sigurbjörnsdóttir / Fursti frá Stóra-Hofi 6,53
5   Erla Katrín Jónsdóttir / Flipi frá Litlu-Sandvík 6,47
6   Stella Sólveig Pálmarsdóttir / Falur frá Skammbeinsstöðum 3 6,40
7   Alexander Ágústsson / Óður frá Hafnarfirði 6,10
8   Guðlaug Jóna Matthíasdóttir / Mylla frá Flögu 6,03
9   Ragnheiður Hallgrímsdóttir / Böðvar frá Tóftum 5,80
10   Hinrik Ragnar Helgason / Haddi frá Akureyri 5,63
11   Edda Rún Guðmundsdóttir / Þulur frá Hólum 5,60
12   Kristín Ísabella Karelsdóttir / Hrammur frá Álftárósi 5,40
13   Ragna Helgadóttir / Skerpla frá Kjarri 5,27
14   Jón Óskar Jóhannesson / Svipall frá Torfastöðum 4,67
15   Elfa Dögg Ragnarsdóttir / Þórir frá Hemlu 4,43 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link