Landsamband hestamanna Ásmundur og Hlökk óstöðvandi

  • 18. júní 2026
  • Fréttir

Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði Mynd: Gunnhildur Ýrr

Niðurstöður úr fjórgangnum á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna

Í dag fór fram forkeppni í fjórgangi í meistaraflokki en þar standa efst eftir forkeppni Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði en þau hlutu 8,17 í einkunn og fengu m.a. eina 10 fyrir greitt hölt.

Á eftir þeim koma Árni Björn Pálsson á Krika frá Krika með 8,00 í einkunn og síðan Jakob Svavar Sigurðsson á Skarp frá Kýrholti með 7.97.

Meteinkunn

Með þessu náðu þau Ásmundur og Hlökk að tryggja sér Íslandsmeistaratitil í samanlögðum fjórgangsgreinum með 8,22 út, en eftir því sem blaðamaður kemst næst er þetta hæsta einkunn sem náðst hefur í samanlögðum fjórgangsgreinum.

Jöfn í ungmennaflokki

Í ungmennaflokki eru þau jöfn í efsta sæti eftir forkeppni Herdís Björg Jóhannsdóttir á Sverði frá Vöðlum og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal á Gretti frá Hólum með 7,13 í einkunn. Þórgunnur Þórarinsdóttir er þriðja á honum Fær frá Prestsbæ með 7,10 í einkunn.

Sýnt í beinni á EiðfaxaTV

Á morgun hefjst leikar kl. 11:00 á seinni umferðinni í kappreiðaskeiðinu og eftir hádegi hefjast B úrslit. Hægt er að sjá ráslista og dagskrá í HorseDay appinu. Mótið allt er sýnt í beinni á EiðfaxaTV en einnig er hægt að horfa á það eftir á.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr forkeppni í fjórgangi í báðum flokkum.

Meistaraflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 8,17
2 Árni Björn Pálsson Kriki frá Krika 8,00
3 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 7,97
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 7,87
5-6 Sara Sigurbjörnsdóttir Dökkvi frá Engjavatni 7,87
5-6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi 7,87
7 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,73
8 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku 7,70
9 Hanna Rún Ingibergsdóttir Hvarmur frá Brautarholti 7,63
10 Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti 7,37
11-12 Ragnhildur Haraldsdóttir Hertogi frá Njálsstöðum 7,17
11-12 Glódís Rún Sigurðardóttir Viktor frá Eylandi 7,17
13 Sigurður Sigurðarson Runni frá Vindási 7,10
14-15 Kári Steinsson Óskaneisti frá Kópavogi 7,00
14-15 Glódís Rún Sigurðardóttir Hávar frá Óskarshóli 7,00
16-17 Stella Sólveig Pálmarsdóttir Farsæll frá Litlalandi Ásahreppi 6,87
16-17 Þorgils Kári Sigurðsson Gramur frá Syðra-Velli 6,87

Ungmennaflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1-2 Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum 7,13
1-2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum 7,13
3 Þórgunnur Þórarinsdóttir Fær frá Prestsbæ 7,10
4 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Draupnir frá Dimmuborg 7,07
5 Eva Kærnested Styrkur frá Skák 6,97
6 Eik Elvarsdóttir Hallveig frá Holtabrún 6,90
7 Sigurður Steingrímsson Vákur frá Vatnsenda 6,87
8 Fanndís Helgadóttir Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum 6,77
9-11 Helgi Freyr Haraldsson Hrynjandi frá Strönd II 6,73
9-11 Matthías Sigurðsson Loki frá Reykjavík 6,73
9-11 Snæfríður Ásta Jónasdóttir Feykir frá Strandarhöfði 6,73
12 Ingunn Rán Sigurðardóttir Svört frá Einhamri 6,73
13-15 Sigurbjörg Helgadóttir Sólon frá Sælukoti 6,70
13-15 Matthías Sigurðsson Klara frá Hárlaugsstöðum 2 6,70
13-15 Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey 6,70
16 Kolbrún Sif Sindradóttir Feldur frá Höfðaborg 6,67
17 Hekla Rán Hannesdóttir Ísberg frá Hákoti 6,50
18-21 Milla Rydström Logan Seifur frá Brekkubæ 6,47
18-21 Sigurður Dagur Eyjólfsson Flinkur frá Áslandi 6,47
18-21 Eva Christine Dahlquist Hengill frá Koltursey 6,47
18-21 Snæfríður Ásta Jónasdóttir Stimpill frá Strandarhöfði 6,47
22-23 Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 6,43
22-23 Hildur María Jóhannesdóttir Viðar frá Klauf 6,43
24 Ragnar Snær Viðarsson Muninn frá Bergi 6,33
25 Dagur Sigurðarson Stjörnusteinn frá Egilsstöðum 1 6,23
26 Júlía Björg Gabaj Knudsen Medína frá Ármóti 6,20

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link