Áttu glæsilegan ungfola?
Ungfolasýning fyrir tveggja og þriggja vetra fola verður haldin í reiðhöllinni á Syðri-Gegnishólum fimmtugudagskvöldið 3. mars kl. 20.30. Hrossaræktarfélög Flóahrepps munu standa fyrir sýningunni en dómari verður Gunnar Arnarsson.
Skráning er til 1. mars hjá Atla Geir í s. 898-2256 eða í netfanginu [email protected] og hja Ágústi Inga í s. 899-5494 eða í netfangið [email protected]. Fram skal koma IS-númer, móðir, faðir og eigandi. Skráningagjald er 2.500 kr.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH