Auglýst eftir liðum í Meistaradeild
Meistaradeild í hestaíþróttum auglýsir eftir liðum til þátttöku í mótaröð deildarinnar árið 2022, lokadagur til að skila inn umsókn er 25. ágúst 2021. Senda skal umsóknina á netfangið info@meistaradeild.is.
Í umsókninni þarf að koma fram hverjir eru liðseigendur og knapar liðsins. Hægt er að nálgast leikreglur Meistaradeildarinnar inn á heimasíðu deildarinnar https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html