Augu hrossa, sjón, litir og mynstur
Það er fyllsta ástæða til að hafa bæði augnlitina og augnlitamynstrin á hreinu. Páll Imsland fjallar um augu og sjón íslenskra hrossa í fræðandi grein í jólablaði Eiðfaxa.
“Augnlitir hrossa eru breytilegir og þessi breytileiki stendur í nokkrum tilvikum í ákveðnu sambandi við litina á feldi hrossanna, hangir á sumum litagenunum, eins og sagt er á faglega kæruleysilegu máli. Einnig koma fyrir í augum hrossa mynstur sem eru í raun óháð augnlitnum sjálfum en tengjast ákveðnum litmynstrum í feldi hrossanna.
Umræðan um augnliti er ónákvæm meðal manna og tiltölulega margir hestamenn virðast ekki alveg átta sig á merkingarmun sumra þeirra orða sem í gangi eru um mismunandi augnliti og augnlitamynstur,” segir Páll og reynir því að gefa einfalda en skýrt yfirlit yfir augnliti og augnlitamynstur hjá hrossum í greininni, sem nálgast má í jólablaði Eiðfaxa
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH