Bak og Lend – 21 hross hlutu einkunnina 9,5

  • 5. september 2020
  • Fréttir

Blakkur frá Þykkvabæ I hlaut 9,5 fyrir bak og lend með einkunnarorðunum Góð baklína - Öflug lend - Jöfn lend Mynd: Hrefna María Ómarsdóttir

Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir „níufimmur og tíur“ ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er bak og lend

Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.

Alls hlutu 21 hross á árinu einkunnina 9,5 fyrir bak og lend en ekkert hross hlaut einkunnina 10,0 í ár, einungis tvö hross hafa hlotið þá einkunn frá upphafi dóma en það eru Hervör frá Hamarsey og Stikill frá Skrúð.

Bak og lend

Í þessum eiginleika er yfirlínan í baki og lend metin; stefnan og sveigjan í bakinu og lengd og halli lendarinnar. Einnig er lagt mat á breidd og vöðvafyllingu baksins, lengd og breidd spjaldhryggjar og lögun og vöðvafyllingu lendarinnar. Horft er til þess að munur á neðsta punkti í baki og hæsta punkt á lend sé ekki of mikill (viðmið: 4 – 6 cm). Til að fá rétta mynd af þessum eiginleika er afar mikilvægt að um rétta uppstillingu hrossins sé að ræða (sjá að ofan). Lögð er áhersla á að eiginleikinn nýtist í reið. Ef vafi leikur á stefnu og/eða sveigju í baki hvað varðar burð eða mýkt skal skoða hvernig hrossinu nýtist eiginleikinn í reið.

9,5 – 10

Bakið er afar burðarmikið; frambakið er hátt og neðsti punktur er fyrir miðju baksins, það er breitt og afar vöðvafyllt. Spjaldhryggurinn er stuttur, breiður og vel vöðvafylltur og samtenging spjaldhryggs og krossbeins er mjúk. Lendin er löng, hæfilega brött, jafnvaxin og vöðvafyllt, lærin hafa mikla og djúpa vöðvafyllingu.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5-10 fyrir bak og lend

Nafn Uppruni Einkunn
Frami Ulbæk 9,5
Sif Eystra-Fróðholti 9,5
Hraunsteinn Íbishóli 9,5
Hófsóley Dallandi 9,5
Auður Varmalandi 9,5
Lyfting Rauðalæk 9,5
Goði Bjarnarstöðum 9,5
Rómur Þjóðólfshaga 9,5
Blakkur Þykkvabæ 9,5
Útherji Blesastöðum 1A 9,5
Már Votumýri 2 9,5
Happastjarna Þúfum 9,5
Hanna Rún Rauðalæk 9,5
Krossnes Lækjarbakka 9,5
Orkuhringur Hjarðartúni 9,5
Pensill Hvolsvelli 9,5
Limra Sunnuholti 9,5
Sif Stóra-Aðalskarði 9,5
Brá Torfunesi 9,5
Þenja Prestsbæ 9,5
Svanur Kringeland 9,5

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link