Baldvin Ari knapi ársins hjá hestamannafélaginu Létti

  • 7. janúar 2013
  • Fréttir
Baldvin Ari knapi ársins hjá hestamannafélaginu Létti

„Knapi ársins hjá Létti árið 2012, er Baldvin Ari Guðlaugsson. Baldvin er öllum hestamönnum kunnur og er búinn að vera í fremstu röð knapa í áraraðir. Baldvin hefur verið valinn knapi ársins hjá Létti undanfarin ár enda ötull og árangursríkur keppnismaður. Árið 2012 keppti Baldvin á flestum mótum Léttis sem og mótum hér í kring með mjög góðum árangri. Meðal annars sigraði Baldvin stigakeppnina í KEA mótaröðinni og bar sigur úr bítum í tölti og fjórgangi og var í öðru sæti í fimmgangi á vormóti Léttis. Baldvin er fjölhæfur knapi og frábær keppnismaður. Það er með mikilli gleði sem við sæmum Baldvin Ara, knapa ársins hjá Létti 2012.“ segir í tilkynningu frá stjórn Léttis

 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link