„Baldvin getur allt“

  • 7. júní 2012
  • Fréttir
„Baldvin getur allt“

Að Króki í Holtum hefur Reynir Örn Pálmason haft veg og vanda af því síðustu mánuði að byggja upp glæsilega aðstöðu en nýverið keypti sænski hrossaræktandinn Göran Montan búið. „Allir hestar í húsinu eru vonarstjörnur í dag,“ segir Reynir um þau 18 hross sem stefnt var með í dóm í byrjun sumars. 

„Hér er mjög efnileg klárhryssa undan Ísaki frá Margrétarhofi og Hrefnu frá Austvaðsholti. Nefna má einnig efnilega Rökkvadóttur sem sýnd var í fyrra en hefur styrkst mjög mikið og þroskast. Hún er flott á tölti og mikið vökur. Þrjár efnismerar undan Víði frá Prestbakka má nefna, eina dóttur Höfða frá Snjallsteinshöfða og svo algert hestagull, efnilega alhliða meri undan Smára frá Skagaströnd og Kopar-Lokku frá Flugumýri en hún var ósýnd og mjög frægt smalahross í Eyjafirði. Í keppni er stefnt með Greifa frá Holtsmúla í A-flokk og nú verður hinum 16 vetra gæðingi, Baldvini frá Stangarholti, stillt upp í tölti og hefur hann þegar skorað 7,72 á Reykjavíkurmeistaramótinu í maí. Baldvin hefur verið í úrslitum á landsmóti bæði í A- og B-flokki og hann er einnig margverðlaunaður í slaktaumatölti. Einstakur hestur með ótrúlegt geðslag. Hann getur allt,“ segir Reynir Örn.
 
Undirbúningur landsmóts 2012 stendur nú sem hæst. Eiðfaxi heimsótti nokkrar af helstu tamningastöðvum landsins og forvitnaðist um nýjar stjörnur og þekkta snillinga sem reiðmenn stefna með til Reykjavíkur og má nálgast þau í 3. tölublaði Eiðfaxa sem ætti nú að hafa borist öllum áskrifendum.
 
Áskrifendur Eiðfaxa geta nálgast þriðja tölublaðið  í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér.
Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið ingibjö[email protected]. Þá mun hin heiðraða Ingibjörg opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
 
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525 eða rafrænt hér.
Þeir sem kjósa frekar að kaupa blaðið í lausasölu get gert það hér í vefversluninni.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link