Bandarísk sjónvarpstöð tekur viðtal við Guðmar Þór Pétursson
Guðmar þór Pétursson hefur unnið ötullega að því að markaðsetja íslenska hestinn í Ameríku síðastliðin 15 ár og vakið mikla athygli með sýningum sínum og kynningu á íslenska hestinum þarlendis. Hann hefur meðal annars tekið þátt í stórsýningum Equine Affair með vel völdum knöpum.
Nú í sumar hefur hann snúið aftur til Íslands aftur og verður með annan fótinn í Ölfusinu þar sem hann mun vera aðstoðarframkvæmdarstjóri á Ingólfshvoli. „Planið er að byggja upp miðstöð fyrir ferðamenn með sýningum á íslenska hestinum. Það verða um 8-10 hestar sem taka þátt og lagt verður upp með það að sýningin hafi sögulegt gildi hestsins okkar. Einnig verður opnaður veitingastaður og skemmtileg minjagripabúð,“ segir Guðmar en opnunin verður í Janúar á næsta ári.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH