Barna og unglingastarf Æskulýðsnefndar Sleipnis 2013

  • 23. febrúar 2013
  • Fréttir
Barna og unglingastarf Æskulýðsnefndar Sleipnis 2013

„Æskulýðsnefnd Sleipnis stendur fyrir öflugu barna og unglingastarfi.

Skráning á námskeið nú um áramótin var mjög góð og eru nú 35 börn, unglingar og ungmenni á námskeiðum en alls eru í gangi 40 námskeiðseiningar en einnig verða haldin vornámskeið. Æskulýðsnefnd mun einnig  vera í forsvari fyrir Hestafjör 2013 og stendur skráning yfir til 28. feb. Þátttaka í Hestafjörinu er þátttakendum að kostnaðarlausu. Reiðkennarar hjá Sleipni eru allir með reiðkennararéttindi  en þeir eru: Ragnhildur Haraldsdóttir, Rósa Birna Þorvaldsdóttir, Hugrún Jóhannsdóttir og Páll Bragi Hólmarsson. 

Nú þegar dimmasti tími ársins fer í hönd tókum við eftir að mikil þörf var á að unga fólkið okkar væri sýnilegra og í samvinnu við Sjóvá var gengið í að útvega öllum börnum á námskeiðum endurskinsvesti til að nota í skammdeginu og þegar kvölda tekur,“ segir í tilkynningu frá Æskulýðsnefnd Sleipnis

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link