Barnaflokkur ríður á vaðið
Landsmót hestamanna 2018 í Reykjavík hefst í dag, sunnudag, með keppni í barna- og unglingaflokki. Framundan er viðburðarríkur dagur þar yngri kynslóðin er í fyrirrúmi. Frítt er inná svæðið og dagskráin fjölbreytt og skemmtileg.
Forseti Íslands heiðrar Landsmót með nærveru sinni kl. 16 og í framhaldinu mæta rappararnir vinsælu Jói Pé og Krolli. Það ættu því flestir að finna eitthvað við sitt hæfi í Víðidalnum í dag.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV