Beðið eftir niðurstöðu úr lyfjaprófi
Austuríski knapinn sem kærður var fyrir að hafa gefið hesti sínum ólöglegt lyf fyrir keppni á Mið-Evrópska meistaramótinu í Þýskaland heitir Petra Reiter-Tropper.
Hún er þekktur knapi í Austurríki, keppti meðal annars á HM2011 og er starfsmaður á hestabúgarði hins kunna knapa og Íslandshestamanns Piet Hoyos, samkvæmt heimasíðu búsins.
Petra keppti í slaktaumatölti á umræddu móti hestinum Sjarma frá Skriðuklaustri í Fljótsdal, sem er 18 vetra í vor en þau hafa átt góðu gengi að fagna í þessari grein um árabil.
Lyfið sem greindist í hestinum eftir lyfjapróf heitir Mefenaminsäure (mefenamin-acid). Lyfið er mjög áhrifaríkt verkjalyf og er notað við bráðaverkjum af ýmsu tagi hjá fólki og þeir sem hafa notað það líkja áhrifum þess við örvandi efni á borð við kókaín.
Lyfið virkar í um sex klukkustundir og eyðist úr líkamanum á um 100 klukkustundir. Það þótti því allt benda til að hestinum hefði verið gefið lyfið fyrir keppni. Lyfjaprófið (A prufa) var sent á rannsóknarstofu og málið kært til FEIF. Málinu var hins vegar vísað frá vegna þess að rannsóknarstofan var ekki „sammþykkt“ sem fullgild rannsóknarstofa fyrir sýni úr hestum.
Þýska Íslansdhestasambandið, IPZV, tók málið hins vegar upp á sína arma og nú hefur B prufa verið send til rannsóknar á viðurkennda rannsóknarstofu.Niðurstöðu er að vænta eftir eina til tvær vikur (SJÁ HÉR). Ef sambærileg niðurstaða fæst úr báðum prufunum á Petra Reiter-Tropper yfir höfði sér allt að tveggja ára keppnisbann.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH