Benedikt Ólafsson Íslandsmeistari í tölti unglinga
Síðustu úrslit á Íslandsmóti barna og unglinga voru töltúrslit unglinga en eins og önnur úrslit dagsins var jafnt á flestum tölum og spennan gífurleg.
Það fór svo að Benedikt Ólafsson stóð uppi semn sigurvegari á Biskupi frá Ólafshaga í öðru sæti varð Hulda María á Garpi frá Skúfslæk og í því þriðja varð Kolbrún Katla Halldórsdóttir á Sigurrós frá Söðulsholti.
Mótið tókst í alla staði vel og geta allir Sleipnismenn og aðrir sem að mótinu komu verið stolt af framkvæmd þess.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Benedikt Ólafsson / Biskup frá Ólafshaga | 7,28 |
| 2 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Garpur frá Skúfslæk | 7,06 |
| 3 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir / Sigurrós frá Söðulsholti | 7,00 |
| 4 | Guðný Dís Jónsdóttir / Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ | 6,94 |
| 5 | Signý Sól Snorradóttir / Rafn frá Melabergi | 6,89 |
| 6 | Sigurður Baldur Ríkharðsson / Auðdís frá Traðarlandi | 6,83 |
Styttu haustið með EiðfaxaTV