Berg valið Ræktunarbú Vesturlands 2011

  • 29. nóvember 2011
  • Fréttir
Berg valið Ræktunarbú Vesturlands 2011

Níu frumkvöðlar Hrossaræktarsambands Vesturlands voru heiðraðir á haustfundi þess sem haldinn var á sunnudaginn, 27. nóvember, í Hótel Borgarnesi. Þetta er í fyrsta sinn sem Hrossaræktarsambandið veitir heiðursviðurkenningar, en stjórnin samþykkti nýlega að veita skyldi þeim sem skarað hafa  framúr í félags- og ræktunarmálum sambandsins gullmerki. Þótti við hæfi að heiðra þennan hóp í fyrsta sinn.

Að venju voru veitt verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahross í eigu Vestlendinga. Auk þess var Ræktunarbú Vesturlands árið 2011 verðlaunað. 
 
Fyrstu gullmerkjahafar Hrossaræktarsambands Vesturlands eru þau Árni Guðmundsson frá Beigalda,  Leifur Kr. Jóhannesson, Mosfellsbæ, Einar E. Gíslason, Syðra-Skörðugili, Haukur Sveinbjarnarson, Snorrastöðum, Gísli Höskuldsson, Hofsstöðum, Sigurborg Ágústa Jónsdóttir, Báreksstöðum, Ólöf Kolbrún Guðbrandsdóttir, Nýja-Bæ, Ragnar Hallsson, Hallkelsstaðahlíð og Högni Bæringsson, Stykkilshólmi.
Eftirfarandi kynbótahross voru tilnefnd, en efsta hryssa og efsti stóðhestur í hverjum aldursflokki fengu viðurkenningu.
 
Hryssur
4ra vetra hryssur:
1. Formúla frá Skipaskaga
2. Elja frá Einhamri
3. Vissa frá Lambanesi
 
5 vetra hryssur.
1. Skriða frá Bergi
2. Marey frá Akranesi
3. Dimma frá Gröf
 
6 vetra hryssur.
1. Brá frá Bergi
2. Líf frá Skáney
3. Gusta frá Skipaskaga
 
7 vetra og eldri hryssur
1. Árborg frá Miðey
2. Gola frá Reykjavík
3. Pollý frá Leirulæk
 
Stóðhestar
4ra vetra stóðhestar
1. Vaðall frá Akranesi
2. Orfeus frá Vestri-Leirárgörðum
3. Ægir frá Efri-Hrepp
 
5 vetra stóðhestar
1. Valur frá Keldudal
2. Laufi frá Skáney
3. Magni frá Hellnafelli
 
6 vetra stóðhestar
1. Váli frá Eystra-Súlunesi
2. Asi frá Lundum
3. Þytur frá Skáney
 
7 vetra og eldri stóðhestar
1. Uggi frá Bergi
2. Arður frá Brautarholti
3. Alvar frá Nýja-Bæ.
 
Ræktunarbú Vesturlands 2011 er Berg, en ræktendur þar eru þau Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson. Önnur bú sem voru tilnefnd eru: Brautarholt, Skáney, Skipaskagi og Vestri-Leirárgarðar.
 
Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands fór yfir kynbótastarfið á árinu og Guðmar Auðbertsson dýralæknir hélt erindi um sæðingar og fósturvísaflutninga. Vöktu erindi þeirra upp margar spurningar hjá fundargestum sem þeir svöruðu greiðlega. 
Fram kom í máli Gísla Guðmundssonar formanns Hrossaræktarsambands Vesturlands að samningar um stóðhesta fyrir næsta ár eru komnir vel á veg. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link