Berglind bókar
Berglind Ragnarsdóttir hefur verið ráðin til að halda utan um bókhald og uppgjör fyrir Landssamband hestamannafélaga og Landsmót hestamanna. Það kemur fram í frétt frá LH.
Berglind Ragnarsdóttir er úr Reykjavík en býr nú á Laugavöllum í Reykholtsdal með dætrum sínum Heiði Karlsdóttir og Kristínu Karlsdóttir. Hún er menntaður viðskiptafræðingur á endurskoðendasviði og hefur hún margra ára reynslu af uppgjörum og gerð ársreikninga. Berglind hefur meðal annars starfað hjá endurskoðunarstofunni Deloitte og sem aðalbókari samstæðu hjá Högum hf. Hún rekur nú eigið bókhalds- og uppgjörsfyrirtæki undir nafninu Fjármálastjórinn ehf.
Hún hefur stundað hestamennsku síðan hún var barn og unnið til margra verðlauna, meðal annars orðið íslandsmeistari og heimsmeistari í fjórgang.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH