Bergur og Olil ræktunarmenn ársins

  • 17. nóvember 2012
  • Fréttir
Bergur og Olil ræktunarmenn ársins

Fullt hús var í Hlégarði í Mosfellsbæ þar sem ráðstefnan Hrossarækt 2012 fór fram. Þar var farið yfir hrossaræktarárið, eigendur heiðursverðlaunahryssa voru heiðraðir og veitt voru verðlaun fyrir hæsta kynbótahross ársins. Þá hlutu Bergur Jónsson og Olil Amble, ræktendur að Syðri-Gegnishólum titlinn ræktunarmenn ársins 2012.

Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ fór yfir hrossaræktarárið og niðurstöður kynbótadóma og kynbótamats á árinu. Alls voru 1590 hross dæmd í 2184 dómum árið 2012 í 16 sýningum. Alls voru 46% þeirra 4 og 5 vetra gömul. Þá hlutu 222 hross lágmarkseinkunn til þátttöku til Landmóts og mættu 204 talsins.

Hæst dæmdu hryssur ársins í hverjum aldursflokki voru:

  • 4 vetra: Erla frá Halakoti – ae. 8,26
  • 5 vetra: Fura frá Hellu – ae. 8,46
  • 6 vetra Kolka frá Hákoti – ae. 8,69
  • 7 vetra og eldri: Álfadrottning frá Austurkoti og Gletta frá Þjóðólfshaga voru jafnar með 8,53 í ae.

Hæst dæmdu hestar ársins í hverjum aldursflokki voru:

  • 4 vetra: Nói frá Stóra-Hofi – ae. 8,51
  • 5 vetra: Arion frá Eystra-Fróðholti – ae. 8,67
  • 6 vetra: Hrannar frá Flugumýri II – ae. 8,85
  • 7 vetra og eldri: Seiður frá Flugumýri II – ae. 8,63

Hæst dæmda hryssa ársins fyrir sköpulag var Frásögn frá Dýrfinnustöðum með 8,88 í einkunn en í flokki hesta hlaut Krókur frá Ytra-Dalsgerði með 8,66.

Þá hlutu fjögur hross yfir 9 í aðaleinkunn kosta á árinu. Af stóðhestum var hæstur er Hrannar frá Flugumýri II sem hlaut 9,16. Óskasteinn frá Íbishóli með 9,12, og Trymbill frá Stóra-Ási með 9,01. Spá frá Eystra-Fróðholti er eina hryssan sem fór yfir 9 fyrir kosti á árinu, hlaut 9,03.

Eigendur Hrannars frá Flugumýri var veitt verðlaun fyrir hæstu aðaleinkunn ársins og knapi hans, Þorvaldur Árni Þorvaldsson fékk verðlaun fyrir hæfileikaeinkunn hans.

Þá var eigendum heiðursverðlaunahryssa ársins veitt viðurkenningar og Þórarinn Eymundsson og eiginkona hans veittu Glettubikarnum viðtökur fyrir hönd eigenda Þoku frá Hólum, Ingu og Ingars Jensen. Ítarlega er fjallað um heiðursverðlaunahryssur í 7. tbl. Eiðfaxa og prýðir Þoka sjálf forsíðu þess.

Þá var aðstandendum þrettán ræktunarbúa veitt viðurkenning fyrir góðan árangur. Ræktunarbúin Auðsholtshjáleiga, Berg, Blesastaðir 1A, Eystra-Fróðholt, Hlemmiskeið 3, Fet, Kvestir, Lækjarbotnar, Prestsbakki, Skipaskagi, Skrúður, Syðri Gegnishólar og Ytra-Vallholt byggja á ólíkum markmiðum en hafa öll náð eftirtektarverðum árangri á árinu.

Titillinn Ræktunarmenn ársins fór svo til Berg Jónssonar og Olil Amble í Syðri-Gegnishólum en þau hafa náð glæsilegum árangri á árinu. . Skemmst er að minnast þess að Álfur frá Selfossi, úr ræktun Olil, hlaut Sleipnisbikarinn og hryssan Framkvæmd frá Ketilsstöðum, úr ræktun Bergs, hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Alls voru 25 hross ræktendanna sýnd á árinu, tíu þeirra hlutu lágmarkseinkunn til þátttöku á Landsmóti og fimm voru í verðlaunasætum. Meðaleinkunn sýndra hrossa var 5,76 ár og meðaltal aðaleinkunna 8,12. Flugnir frá Ketilsstöðum var í 9. sæti í elsta flokki stóðhesta, Aðaldís frá Syðri-Gegnishólum var í 9. sæti í flokki 6. vetra hryssa. Strokkur var í 6. sæti í flokk 5 vetra stóðhesta, Mugga var í 9. sæti í flokki 5 vetra hryssa og Álfhildur, alsystir Álfs, var í 7. sæti í flokki 4 vetra hryssa.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link