Berin eru stundum súr
Eyjólfur Þorsteinsson sigraði af öryggi í 150 metra skeiði í Meistaradeildinni í hestaíþróttum á Veru frá Þóroddsstöðum á 14,76 sekúndum. Sigurinn var þó ekki án súrleika, því Óðinn Örn Jóhannsson, blaðamaður Eiðfaxa, benti á í frétt hér á Eiðfaxa.is að Eyjólfur hefði truflað hinn knapann í riðlinum, sá hafi sent inn kvörtun og fengið aukasprett fyrir vikið.
Jens Einarsson:
Óðinn varpaði fram þeirri spurningu hvort tími Eyjólfs væri þar með ekki ógildur, eins og kveðið er á um í reglum LH. Hefur þetta valdið nokkrum titringi og brigður verið bornar á fréttaflutninginn, ekki síst vegna þess að Óðinn Örn gagnrýndi reiðmennsku Eyjólfs í fimmgangi Meistaradeildarinnar. Eiðfaxi stendur þó við fréttina, enda forsendur hennar augljósar. Engin persónuleg óvild liggur þar að baki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH