Bikar frá Syðra-Langholti valið glæsilegasta folald sýningarinnar
Myndir: Facebook Hrossaræktarfélags hrunamanna
Eftir óþarflega langt hlé var loksins haldin folaldasýning á vegum Hrossaræktarfélags Hrunamanna í Reiðhöllinni á Flúðum þann 8. maí sl.
Eflaust mætti þó frekar tala um tryppasýningu þar sem rétt til þáttöku áttu veturgömul tryppi fædd 2021.
Þáttaka var með eindæmum góð og voru í heildina 33 tryppi skráð til leiks. Virkileg skemmtileg dagsstund þar sem margt var um manninn á áhorfendapöllunum og áhugasamir hrossaræktendur og aðrir gestir virtu fyrir sér vonarstjörnur framtíðarinnar.
Að loknum úrslitum í öllum flokkum var farið yfir niðurstöður og ýmis önnur mál yfir veglegu kaffihlaðborði í boði félagsins.
Stjórnin þakkar öllum þeim sem mættu með tryppi og öðrum gestum fyrir komuna.
Dómarar voru þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Reynir Örn Pálmason og þökkum við þeim sérstaklega fyrir þeirra framlag.
Glæsilegasta folald sýningarinnar að mati áhorfenda var Bikar frá Syðra-Langholti.
Hér að neðan má sjá önnur úrslit dagsins:
HRYSSUFLOKKUR
1. IS2021288321 Sunna frá Syðra Langholti
Jarpblesótt, hringeyg
F. Pensill frá Hvolsvelli
M. Gleði frá Kaldbak
Ræktandi og eigandi: Sigmundur Jóhannesson
2. IS2021312 Minning frá Miðfelli 5
Brún
F. Kveikur frá Stangarlæk
M. Aldvaka frá Miðfelli 5
Ræktendur: Björgvin Viðar jónsson og Magnús Gunnlaugsson
Eigandi: Björgvin Viðar Jónsson
3. IS2021288213 Vanda frá Hrafnkelsstöðum 1
Rauðtvístjörnótt
F. Sigur frá Laugabökkum
M. Hávör frá Hrafnkelsstöðum 1
Ræktandi og eigandi: Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir
4-5. IS2021288292 Vala frá Reykjadal
Rauð
F. Skýr frá Skálakoti
M. Vaka frá Ásbrú
Ræktendur og eigendur: Guðríður Eva Þórarinsdóttir og Jón William Bjarkason
4-5. Hrísla frá Hrafnkelsstöðum 1
Rauð
F. Sigur frá Laugabökkum
M. Lind frá Hrafnkelsstöðum 1
Ræktandi og eigandi: Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir
HESTAFLOKKUR
1. IS2021288293 Háleggur frá Reykjadal
Móálóttur
F. Bassi frá Sólheimum
M. Orða frá Ásbjarnarstöðum
Ræktendur og eigendur: Þórarinn Ingi Úlfarsson og Þóra Sædís Bragadóttir
2. IS2021188321 Bikar frá Syðra-Langholti
Moldóttur
F. Brimnir frá Efri-Fitjum
M. Salka frá Helgustöðum
Ræktendur og eigendur: Arna Þöll Sigmundsdóttir og Þorsteinn Gunnar Þorsteinsson
3. IS2021188291 Kaleó frá Reykjadal
Brúnstjörnóttur
F. Viðar frá Skör
M. Þyrla frá Strandarhjáleigu
Ræktendur og eigendur: Guðríður Eva Þórarinsdóttir og Jón William Bjarkason
4-5. IS2021188287 Safír frá Fossi
Jarpur
F. Skýr frá Skálakoti
M. Snoppa frá Fossi
Ræktendur og eigendur: Bára Másdóttir og Bjarni Hjörleifsson
4-5. IS2021188297 Bragur frá Dalbæ 1
Dökkjarpur
F. Hringur frá Gunnarsstöðum
M. Vísa frá Högnastöðum 2
Ræktandi og eigandi: Björgvin Viðar Jónsson
GESTAFLOKKUR
1. IS2021182311 Sólríkur frá Hamarsey
Bleikálóttur
F. Blakkur frá Þykkvabæ
M. Sóllilja frá Hamarsey
Ræktandi og eigandi : Hrossaræktarbúið Hamarsey
2. IS2021282060 Kvika frá Varmá
Brún
F. Viðar frá Skeiðvöllum
M. Bríet frá Varmá
Ræktandi og eigandi : Janus Halldór Eiríksson
3. IS2021158171 Snókur frá Siglufirði
Jarpur
F. Ölnir frá Akranesi
M. Snara frá Siglufirði
Ræktandi og eigandi : Hafliði Jón Sigurðsson
4-5. IS2021255755 Ósk frá Aðalbóli
Brúnskjótt
F. Þyrill frá Aðalbóli
M. Örk-Yngri frá Aðalbóli
Ræktandi: Inga Hjördís Aðalbjarnardóttir
Eigandi: Arna Þöll Sigmundsdóttir
4-5. IS2021188560 Tígulás frá Kjarnholtum I
Rauðtvístjörnóttur
F. Adrían frá Garðshorni á Þelamörk
M. Aría frá Kjarnholtum
Ræktandi og eigandi : Magnús Einarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH