Bikarmóti Vesturlands

  • 22. júlí 2017
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Skráningu lýkur um miðnætti miðvikudaginn 26 júlí.

Þá er komið að Bikarmóti Vesturlands og að þessu sinni er það haldið í Stykkishólmi sunnudaginn 30 júlí.

Þetta er mót sem opið er fyrir félagsmenn vestlenskra hestamannafélaga og er stigamót þannig að efstu þrír í hverri grein telja til stiga fyrir félagið (árangur í forkeppni gildir). Áskilinn er réttur til að fella niður grein ef færri en 3 skrá sig til leiks.

Keppnisgreinar eru:

Barnaflokkur: Fjórgangur V2 og tölt T3.

Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 

Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið PP1

Annar flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3

Opinn flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m. skeið

Skráningar fara fram í gegn um sportfeng líkt og áður. Mótshaldari er Snæfellingur. 

Skráningargjöld eru: Barna – og unglingaflokkur, kr. 2.000 – pr. skráningu. Ungmenna – annar – og opinn flokkur kr. 3.000.- pr. skráningu.

Skráningu lýkur um miðnætti miðvikudaginn 26 júlí. Netfang og símanúmer fyrir aðstoð er [email protected] sími 8458828 

Hestamannafélagið Snæfellingur væntir þess að sem allra flestir sjái sér fært að koma í Stykkishólm og keppa fyrir félag sitt.

Mótanefnd Snæfellings

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link