Bjargarleysi í Bárðargötu

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Vonarskarð afar fáfarin leið

Hestamenn og aðrir útivistar menn harma lokun Vonarskarð, sem líklegt er samkvæmt tillögum stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Ekki eru þó allir sammála um að hér sé um hefðbundna akstur- eða forna reiðleið að ræða. Doktor Haraldur Matthíasson, menntaskólakennari á Laugarvanti, og kona hans Kristín Ólafsdóttir gengu Bárðargötu um 1960. Ferðasaga og lýsing þeirra á leiðinni og sögu hennar var gefin út í Árbók Ferðafélags Íslands 1963. Þar segir meðal annars:

„Ekki vita menn, hvort Bárðargata var nokkru sinni farin á fyrri öldum, eftir að Bárður lagði þar leið sína. Segja má þó, að nafnið Bárðargata bendi til þess, að einhverjir hafi farið þar, því að ólíklegt er, að nafn sé gefið þeirri leið, sem aldrei er farin. Þór er það vel hugsanlegt. För Bárðar hefur orðið allfræg, enda eins dæmi, og því hefur leiðin hlotið nafn, þótt enginn þekkti hana. Leiðin hefði verið mjög örðug ríðandi mönnum. Torfærur eru þar illar og leiðin mjög seinfarin og bjargarleysi óskaplegt. Má kalla, að þar sé alger hagleysa hestum meira en tvöfalt lengri leið en allur Sprengisandur er. Mér virðist því miklu líklegast, að Gnúpa-Bárður og hans menn séu hinir einu, sem farið hafa leiðina fyrr og síðar.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link