Bjarndís Rut er gæðingameistari barna árið 2020
Bjarndís er gæðingameistari ársins 2020 í barnaflokki
Yngstu keppendurnir hér á Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni stóðu sig frábærlega eins og þeirra er von og vísa. Barnaflokkur í gæðingakeppni er skemmtileg keppnisgrein en keppendur mega ráða hvort þeir sýna tölt eða brokk og svo er hleypt til stökks.
Bjarndís Rut Ragnarsdóttir sigraði keppinauta sína í Barnaflokki á Tenór frá Hemlu II og hlaut í heildareinkunn 8,74, hún er því gæðingameistari ársins í barnaflokki.
Í öðru sæti varð Kolbrún Sif Sindradóttir á Sindra frá Keldudal og í því þriðja Þórhildur Lotta Kjartansdóttir á Göldruni frá Hákoti.
Barnaflokkur A-úrslit
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Bjarndís Rut Ragnarsdóttir / Tenór frá Hemlu II | 8,74 |
| 2 | Kolbrún Sif Sindradóttir / Sindri frá Keldudal | 8,64 |
| 3 | Þórhildur Lotta Kjartansdóttir / Göldrun frá Hákoti | 8,53 |
| 4 | Steinunn Lilja Guðnadóttir / Assa frá Þúfu í Landeyjum | 8,42 |
| 5 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Ísar frá Skáney | 8,41 |
| 6 | Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir / Komma frá Traðarlandi | 8,37 |
| 7 | Friðrik Snær Friðriksson / Dagrenning frá Dallandi | 8,36 |
| 8 | Dagur Sigurðarson / Fold frá Jaðri | 6,81 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV