Bjarni Jónasson sigurvegari KS-deildar

  • 10. apríl 2012
  • Fréttir
Bjarni Jónasson sigurvegari KS-deildar

Bjarni Jónasson er sigurvegari KS-deildarinnar, Meistaradeildar Norðurlands, árið 2012. Hann knúði  fram sigur í æsispennandi lokakeppni þegar hann flaug gegnum höllina á flugskeiði á Hrapp frá Sauðárkróki á 5,04 sekúndum. Í reynd var það þriðji besti skeiðsprettur kvöldsins, en Bjarni hefur á öllum mótum lokið keppni meðal efstu knapa tryggði góður árangur honum 34 stig í heildarstigakeppni deildarinnar. Annar var Sölvi Sigurðarson með 32 stig og Mette Mannseth í því þriðja með 29,5 stig.

 
Árangur Bjarna:
  • 2. sæti í tölti á Roða frá Garði
  • 2. sæti í fimmgangi á Djásn frá Hnjúki
  • 3. sæti í skeiði á Hrapp frá Sauðárkróki
  • 4. sæti í fjórgangi á Roða frá Garði
  • 5. sæti í slaktaumatölti á Svala frá Garði
 
Stigasöfnun   
Knapar            Heild.stig
  1. Bjarni Jónasson          34
  2. Sölvi Sigurðarson       32
  3. Mette Mannseth         29,5
  4. Ísólfur Líndal             25
  5. Þórarinn Eymundsson            20,5
  6. Ólafur Magnússon     18
  7. Tryggvi Björnsson      17
  8. Baldvin Ari Guðlaugsson      17
  9. Þorbjörn H Matthíasson         11
  10. Fanney D Indriðadóttir         9,5
  11. Elvar Einarsson          6,5
  12. Viðar Bragason          4
 
 
Tryggvi Björnsson sigraði keppni í slaktaumatölti nokkuð örugglega á Gulltoppi frá Þjóðólfshaga. Voru þeir langefstir eftir forkeppni, og héldu öruggri forystu til loka, hlutu 7,58. Mette Mannseth á Stjörnustæl frá Dalvík og Þórarinn Eymundsson á Takti frá Varmalæk gerðu heiðarlega atlögu að þeim í úrslitum, hlutu bæði 7,38 í úrslitum en Mette fékk silfur eftir hlutkesti.
 
Slaktauma tölt
A-úrslit                      
1          Tryggvi Björnsson      7,58
2          Mette Mannseth         7,38
3          Þórarinn Eymundsson            7,38
4          Sölvi Sigurðarson       7,00
5          Bjarni Jónasson          6,83
 
B-úrslit
5          Sölvi Sigurðarson       7,00
6          Ísólfur L Þórisson       6,96
7          Elvar Einarsson          6,92
8          Fanney Dögg Indriðad          6,54
9          Sveinn B Friðriksson  6,46
 
 
            Forkeppni      
  1. Tryggvi Björnsson      Gulltoppur frá Þjóðólfshaga  7,20
  2. Mette Mannseth         Stjörnustæll frá Dalvík           6,63
  3. Þórarinn Eymundsson            Taktur frá Varmalæk 6,57
  4. Bjarni Jónasson          Svala frá Garði 6,53
  5. Sölvi Sigurðarson       Glaður frá Grund       6,43
  6. Ísólfur L Þórisson      Freyðir frá Leysingjastöðum  6,33
  7. Elvar Einarsson          Lárus frá Syðra Skörðugili     6,23
  8. Fanney Dögg Indriðad          Grettir frá Grafarkoti 6,20
  9. Sveinn B Friðriksson  Synd frá Varmalæk    6,13
  10. Viðar Bragason          Björg frá Björgum      6,07
  11. Þorsteinn Björnsson   Kylja frá Hólum         6,07
  12. Hörður Óli Sæmundarson      Lotus frá Vatnsleysu  5,87
  13. Baldvin Ari Guðlaugsson      Senjor frá Syðri Ey     5,87
  14. Ólafur Magnússon     Gáski frá Sveinsstöðum         5,83
  15. Elvar Logi Friðriksson           Brúney frá Grafarkoti            5,73
  16. Þorbjörn H Matthíasson         Hrollur frá Grímsey    5,30
  17. Erlingur Ingvarsson    Þerna frá Hlíðarenda 5,23
  18. Magnús B Magnússon           Heiðar frá Skefilsstöðum       3,60
 
Lokagrein mótaraðarinnar var hörkuspennandi skeiðkeppni, þar sem vekringar voru teknir til kostanna gegnum Svaðastaðahöll. Mette Mannseth fór þar mikinn á Þúsöld frá Hólum, besti tími þeirra var 4,96 sekúndur, og varð ögn fljótari en Þórarinn Eymundsson og Bragur frá Bjarnastöðum sem skeiðuðu í gegn á 4,98 sekúndum.
 
Skeið
  1. Mette Mannseth   Þúsöld frá Hólum       4,96
  2. Þórarinn Eymundsson      Bragur frá Bjarnastöðum       4,98
  3. Bjarni Jónasson    Hrappur frá Sauðárkróki        5,04
  4. Þorbjörn H Matthíasson   Mötull frá Torfunesi   5,08
  5. Sölvi Sigurðarson Steinn frá Bakkakoti  5,09
  6. Ísólfur L Þórisson            Flugar frá Barkarstöðum        5,12
  7. Erlingur Ingvarsson         Stígur frá Efri Þverá   5,22
  8. Baldvin Ari Guðlaugsson            Jökull frá Efri Rauðalæk        5,24
  9. Magnús B Magnússon     Fjölnir frá Sjávarborg 5,27
  10. Tryggvi Björnsson           Blær frá Miðsitju        5,31
  11. Þorsteinn Björnsson         Melkorka frá Lækjamóti        5,31
  12. Elvar Einarsson    Segull frá Halldórsstöðum     5,4
  13. Elvar Logi Friðriksson     Hvirfill frá Bessastöðum        5,42
  14. Sveinn B Friðriksson       Glaumur frá Varmalæk          5,45
  15. Ólafur Magnússon           Steina frá Nykhóli      5,71
  16. Viðar Bragason    Sísí frá Björgum         5,79
  17. Fanney Dögg Indriðad    Harpa frá Margrétarhofi         6,73
  18. Hörður Óli Sæmundarson           Hreinn frá Vatnsleysu            0,00

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link