Blanda saman klassískri og frjálsri reiðmennsku-

  • 30. nóvember 2011
  • Fréttir
Blanda saman klassískri og frjálsri reiðmennsku-

Þau Hinrik Bragason og Hulda Gústafsdóttir eru í dag kennd við Árbakka í Landsveit. Þau hafa verið í sviðsljósinu í hestamennskunni í mörg ár og hafa komið að flestum þáttum hennar. Börn þeirra, þau Edda Hrund og Gústaf Ásgeir, eru einnig smituð af hestabakteríunni og hafa verið dugleg á keppnisvellinum undanfarin ár.  Sumarið 2011 verður þeim hjónum án efa eftirminnilegt því þau stóðu í fremstu röð á mörgum vígstöðvum. Sigur í A-flokki á Landsmóti sem og fjórða sætið, sigur í fjórgangi á Íslandsmóti, úrslit í tölti á Landsmóti og bæði áttu þau sæti í landsliði okkar Íslendinga í Austurríki, svo eitthvað sé nefnt.

Blaðamaður Eiðfaxa brá sér í heimsókn til þeirra hjóna þegar þau voru nýkomin úr frægðarför á Heimsmeistaramótið og mun viðtal við þau birtast í 8. tbl. Eiðfaxa – veglegri jólaútgáfu- sem er um það bil að koma út. Hjónin prýða jafnframt forsíðu blaðsins.

„Við erum alltaf að reyna að þróa okkur þjálfunarlega og finna hvað hentar okkur sem reiðmönnum og þeim hestum sem við erum með,“ segir Hulda m.a. í viðtalinu. „Ég get ekki sagt að það sé einhver ein leið, heldur hallast ég að því að blanda af frjálsri reiðmennsku og klassík virki fyrir okkur. Mýkt, eftirgjöf og samvinna er það sem við leitum að og svo auðvitað stjórn á spennustigi. Það að geta haft stjórn á því að geta kallað fram full afköst, og geta svo slakað á þegar á þarf að halda, er gríðarlega mikilvægt til að ná árangri á brautinni.“

„Svo er mikilvægt að gefa sér tíma og vera duglegur við að leggja inn,“ segir Hinrik. „Við erum núna með hesta sem við erum að hugsa sem kandídata fyrir næsta Landsmót eða jafnvel HM 2013 og Landsmót 2014. Við reynum að gefa okkur tíma til að þjálfa og undirbúa þá hesta fyrir þessi átök og ég held að það sé eitt af því sem þjálfarar eru að gera meira og meira af, að gefa sér góðan tíma til að þjálfa og leggja inn.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link