Blómlegt fræðslustarf í Fáki!
Á næstu dögum og vikum hefjast fjöldi áhugaverðra námskeiða á vegum fræðslunefndar Fáks. Nefndin vonast til þess að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Öll skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Dagskráin er eftirfarandi:
- Á mánudögum mun Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir vera með námskeiðið Vinna í hendi. Boðið verður bæði upp á grunnhóp og framhaldshóp fyrir þá sem hafa farið á námskeið til hennar áður.
- Róbert Petersen heldur áfram með bæði einka- og paratíma á mánudögum og miðvikudögum.
- Anna og Friffi bjóða upp á einkatíma á þriðjudögum.
- Sölvi Sigurðarson býður uppá einkatíma á miðvikudögum.
- Magnús Lárusson býður uppá einkatíma á föstudögum.
Fyrir utan þessi lengri námskeið verður boðið upp á nokkur styttri námskeið og helgarnámskeið. Margfaldur heimsmeistari og hestadómari Johan Haggberg býður uppá einkatíma 5.-6. mars í Víðidalnum. Fleiri heimsmeistarar eru væntanlegir en Julia L. Christansen heimsmeistari mun einnig bjóða uppá einkatíma í lok mars.
Vigdís Matthíasdóttir mun halda tvö helgarnámskeið fyrir yngri kynslóðina, það fyrra verður helgina 14.-15. mars og seinna námskeiðið verður 9.-11. apríl.
Þá liggur fyrir að boðið verður uppá námskeið í byggingardómum kynbótahrossa þannig að Fáksfélagar verði vel undirbúnir fyrir brekkudóma á Landsmóti í sumar.
Ennfremur eru fleiri fræðslufyrirlestrar fyrirhugaðir. Fræðslunefnd tekur öllum góðum hugmyndum fagnandi á netfanginu [email protected]
Með fræðslukveðju
Fræðslunefnd Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH