Blue lagoon mótaröðin – Skráning hafin í fimmgang!

  • 14. febrúar 2020
  • Fréttir

Nú styttist í annað mót Blue Lagoon mótaraðarinnar í Samskipahöllinni í Spretti.

Mótið verður haldið föstudaginn 21. febrúar.

Keppt verður í fimmgangi og verða eftirfarandi flokkar í boði:

Barnaflokkur (10-13 ára)

Unglingaflokkur (14-17 ára)

Ungmennaflokkur (18-21 árs)

Riðið verður hefðbundið fimmgangsprógram F2 í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og stendur til miðnættis þriðjudaginn 18. febrúar.

Ef þið lendið í vandræðum við skráningu þá vinsamlegast sendið tölvupóst á motanefnd@sprettarar.is

Skráningargjöld eru 2500 kr. per skráningu.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar