BLUPP tröll til sölu

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Stóðhestsefni af Þ-línunni

Þeir sem hafa trú á BLUPPI geta nú keypti sér stóðhestsefni af dýrari sortinni. Á smáauglýsingavef Hestafrétta er auglýstur til sölu tveggja vetra stóðhestsefni, Ögri frá Efri-Rotum. Hann er í hópi hæst metnu ungfola landsins í BLUPPI, er með 125 stig og í öðru sæti íslenskra ótamdra og ósýndra graðfola hér á landi. Nokkrir eru hærri að stigum í útlöndum. Ögri er undan Vilmundi frá Feti, sem er að sanna sig sem einn af álitlegustu undaneldishestum landsins, og Frægð frá Hólum, sem er af Þ-línunni svokölluðu; undan Þilju frá Hólum, Þrennudóttur Þráardóttur frá Hólum. Faðir Frægðar er Jór frá Kjartansstöðum. Systkini Frægðar að móðurinni eru gæðingar. þar á meðal er För frá Hólum, sem er ein hæst dæmda hryssa ársins í ár með 8,48 í aðaleinkunn. Frægð er með prýðilegan einstaklingsdóm, aðaleinkunn 8,28, vel byggð alhliða reiðhryssa með 9,0 fyrir framhluta, hófa og fet. Afkvæmi hennar eru ung að árum. Einn sonur hennar er með dóm, stóðhestur undan Adam frá Ásmundarstöðum. Hann var sýndur í Svíþjóð og fékk 7,80 í aðaleinkunn, sem er hæpin einkunn fyrir stóðhest.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link