Bluppkóngar í Hestablaðinu

  • 20. apríl 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Krákur frá Blesastöðum 1A er langhæstur reyndra stóðhesta fyrir tölt í kynbótamati WorldFengs.

Krákur frá Blesastöðum 1A blandar sér í toppbaráttuna

Í Hestablaðinu – Stóðhestar og hrossarækt, sem kemur út 26. apríl, er ítarleg úttekt á kynbótamati WorldFengs (Blupp) á bestu stóðhestanna í landinu. Tekin er staðan einstökum stóðhestum miðað við stöðu þeirra í fyrra og nýjir toppar kynntir til sögunnar.

Sem fyrr gnæfir Orri frá Þúfu yfir aðra stóðhesta, ásamt sonum sínum og sonarsonum. Athygli vekur að sjálfur er hann nú hærri fyrir sköpulag (122) en hæfileika (120).

En nýir toppar eru að koma inn. Krákur frá Blesastöðum 1A er langhæstur reyndra stóðhesta fyrir tölt. Hann er einnig á toppi fyrir fleiri eiginleika, svo sem fegurð, stökk og brokk.

Lesið fróðlega úttekt í Hestablaðinu – Stóðhestar og hrossarækt um kynbótamatið.

Áskrifendur fá Stóðhestablaðið frítt. Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link