Bókleg kennsla í knapamerkjum hjá Fák
Knapamerkjanámskeið Fáks verða ekki með hefðbundnu sniði í vetur því öll bókleg kennsla mun fara fram í nóvember og svo mun verkleg kennsla hefjast í janúar. Markmiðið með þessu er að auka gæði bóklegu kennslunnar og jafnframt gera námið skilvirkara og hagkvæmara fyrir nemendur. Nemendur geta einnig tekið bóklega námið sér og þá verklega seinna en fá reyndar ekki prófskirteini afhent fyrr en báði verklegt og bóklegt er búið í viðkomandi knapamerki. Athugið að ekki verður boðið upp á bóklegt nám í knapamerkjum aftur fyrr en næsta haust. Námskeiðið er opið fyrir alla sem eru í hestamannafélagi.
Skráning á [email protected] , skráningafrestur til 3. nóv. (verð kemur fljótlega en það fer eftir fjölda nemenda).
Drög að fyrirkomulagi: Kennt verður á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00 – 21:00 í félagsheimili Fáks. Knapamerki 1 og 2 eru kennd saman sem og Knapamerki 3 og 4. Þeir sem ætla fara í knapamerki 5 eiga/mega að sitja alla tímana og fá svo sérkennslu í fimm í lokin en þeir taka próf úr öllum knapamerkjastigunum.
Kennari verður Sigrún Sigurðardóttir og mun hún einnig fá gestakennara í lið með sér s.s. dýralækni og járningarmann.
Mánudaginn 7. nóvember kl. 17 – 19 Knapamerki 1. og 2. saman
Mánudaginn 7. nóvember kl. 19 – 21 Knapamerki 3. og 4. saman
Fimmtudaginn 10. nóvember kl. 17 – 19 Knapamerki 1. og 2. saman
Fimmtudaginn 10. nóvember kl. 19 – 21 Knapamerki 3. og 4. saman
Mánudaginn 14. nóvember kl. 17 – 19 Knapamerki 1. og 2. saman
Mánudaginn 14. nóvember kl. 19 – 21 Knapamerki 3. og 4. saman
Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 17 – 19 Knapamerki 3. og 4. saman
Mánudaginn 11. nóvember kl. 17 – 19 Knapamerki 5
Fimmtudaginn 24 nóvember kl. 17 – 19 Knapamerki 5
Mánudaginn 28. nóvember kl. 17 – 19 Knapamerki 5
Prófdagar verða svo ákveðnir í samráði við nemendur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH