Börnin áfram á stökki
LH þing felldi tillögu Mána í Keflavík þess efnis að sama prógram skuli riðið í barnaflokki og unglingaflokki. Ástæðan er sú að mörgum blöskrar að börn í yngsta flokki skuli vera látin ríða stökk í úrslitum. Einum flokka. Oft á tíðum hefur munað litlu að illa fari, enda hrossin sem börnin eru á oft mjög hátt stemmd. Einnig hefur það færst í vöxt að börnin ríði á stóðhestum í keppninni. Oftar en ekki hafa stökksýningar barna endað með frávísun, til dæmis í B úrslitum á LM2012 þegar hestur stökk út af vellinum þegar knapinn gat ekki stöðvað hann og hesturinn stökk inn í hóp þeirra sem biðu eftir að röðin kæmi að þeim. En sem sagt: Barnastökkið heldur velli.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH