Bréf frá hrossaræktarráðunaut
Niðurröðun kynbótadómara til dómstarfa. Ritstjóri Eiðfaxa sló á þráðinn til mín og spurði út í niðurröðun kynbótadómara til starfa á hinum einstöku kynbótasýningum ársins…
Höfðu einhverjir gefið í skyn að þessum upplýsingum væri haldið leyndum.Eftir útskýringar mínar á þessum málum varð að ráði okkar ritstjórans að ég ritaði nokkur orð um þetta mál.
Ástæða þess að þessi listi er ekki opinberlega birtur er sá að þarna getur margt breyst og mun án efa breytast. Vissulega hef ég nú raðað dómurum til starfa á öllum kynbótasýningum ársins eins og mér ber skylda til. Þar sem ég reikna með mikilli þátttöku í vor þá set ég t.d. tvær dómnefndir á nær allar sýningar sunnanlands. Hinsvegar er það svo að ef þátttaka verður minni en áætlað er þá verður aðeins ein dómnefnd að störfum sem er þá samsett af einhverjum þremur hinna sex dómara sem áttu að dæma á þeirri sýningu.
Í öðru lagi er sá siður við lýði þar sem starfa tvær dómnefndir að dómurum er víxlað milli dómnefnda milli daga þannig að helst allir dæmi með öllum á viðkomandi sýningu nema formenn dómnefnda þeirrar sýningar.
Í þriðja lagi getur skipulagið riðlast verulega, um allt land, ef aðsókn fer fram úr björtustu vonum og sýningar fara að skarast milli landsvæða, þá gæti ég þurft að breyta niðurröðun dómara jafnvel algjörlega frá grunni.
Í fjórða lagi er sú regla við lýði að ef hross á viðkomandi sýningu eru 25 eða færri þá dugar að hafa tvo dómara, þannig að einn þeirra sem raðað hefur verið til starfa á viðkomandi sýningu situr þá heima, hver það verður er ekki fyrirfram ákveðið.
Þannig að svo ekkert fari milli mála þá er áætluð niðurröðun dómara alls ekkert leyndarmál og mun ég fúslega svara spurningum þar um ef eftir er leitað. Nú þegar hafa framfærnir einstaklingar hringt og spurt um niðurröðun og fengið svör við.
Með ræktunarkveðjum,
Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH