Breskur auðmaður kaupir Sólbjart frá Flekkudal

  • 2. mars 2013
  • Fréttir
Breskur auðmaður kaupir Sólbjart frá Flekkudal

Breskur auðmaður, Richard George, hefur keypt Sólbjart frá Flekkudal, sem varð efstur í fimmgangi Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum. Hann hefur einnig keypt Vaðal frá Akranesi. Báðir eru vel ættaðir og hátt dæmdir stóðhestar.

JENS EINARSSON:

Richard George þessi er samkvæmt heimildum ekki hestamaður sem slíkur, en hann og kona hans hrifust mjög af Íslandi og íslenskri náttúru fyrir nokkrum árum. Þau kynntust Ísólfi Líndal og fjölskyldu hans á Lækjamóti og þeir Sólbjartur og Vaðall verða í umsjá hans næstu misserin.

Ísólfur vildi lítið tjá sig um kaupin á þeim Vaðli og Sólbjarti, en staðfesti að þeir yrðu í þjálfun hjá honum ásamt fleiri hestum. Hann vildi ekkert segja um hvort frekara framhald verði á þessu samstarfi né með hvaða hætti það þá verði.

„Þetta er vinafólk okkar sem hefur tekið ástfóstri við landið. Eitt það skemmtilegasta sem þau gera er að koma til Íslands. Þau eru miklir náttúruunnendur. Þeim finnst íslenski hesturinn líka mjög áhugaverður og eiga nokkur íslensk hross í Bretlandi. Hvort það verður eitthvað meira úr umsvifum þeirra hér á landi verður bara að koma í ljós.

Vaðall hefur verið hjá mér síðan í desember og ég er að sækja Sólbjart nú um helgina. Þriðji hesturinn sem Richard George hefur fest kaup á er Korði frá Kanastöðum, sem er keppnishestur og vekringur sem Teitur Árnason hefur náð góðum árangri á. Hann verður líka hjá mér í vetur,“ segir Ísólfur.

Því má bæta við að Vaðall var sýndur 4 vetra og hlaut þá 8,36 í aðaleinkunn, sýnandi Karen Líndal Marteinsdóttir. Hann hlaut 8,35 á LM2012 í Reykjavík, sýnandi Þórður Þorgeirsson. Hann er undan Aðli frá Nýjabæ og Þræsingu frá Nýjabæ, Hrafnsdóttur frá Holtsmúla.

Sólbjartur er undan Hugin frá Haga og Pyttlu frá Flekkudal, sem stóð efst í elsta flokki hryssna á LM2004 á Hellu. Sólbjartur hefur verið heldur seinn í gang, var ekki sýndur fullnaðardómi í kynbótadómi fyrr en sex vetra en hlaut þá góða einkunn, 8,29. Sýnandi Artemisia Bertus. Artemisa keppti einnig í fimmgangi á Sólbjarti í fyrra með ágætum árangri. Fékk hæst 7,10 í einkunn.

Korði er 12 vetra undan Aski frá Kanastöðum og Kolsköru frá Viðborðsseli 1, Kolfinnsdóttur frá Kjarnholtum. Hann hefur margoft hlaupið 100 m skeið undir 8,0 sekúndum og á best 22,64 í 250 m skeiði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link