Breytingar á þátttökurétt á Landsmót helst óbreytt

  • 20. október 2012
  • Fréttir
Breytingar á þátttökurétt á Landsmót helst óbreytt

Umræða um þingskjal 30 tók óvænta stefnu. Í tillögunni, sem kom frá hestamannafélaginu Geysi, er lagt til að val keppenda í A og B flokki gæðinga á Landsmót verði breytt þannig að 1 keppandi frá hverju aðildafélagi fengi rétt inn á mótið, en að öðru leyti myndu einkunnir ráða þáttökurétti í flokkunum.

Bæði Allsherjarnefnd og Keppnisnefnd tóku tillöguna fyrir í gær og voru þær sammála um að breytingin væri of mikil og vand meðfarin. Báðar nefndirnar felldu því tillöguna.

Sigurður Ævarsson steig hins vegar í pontu í umræðu og lagði til nýja tillögu sem hann hafði sett saman í félagi við Súsönnu Ólafsdóttur. Lögðu þau til að sex hæst dæmdu hestar á mótum sem ekki komast inn í gegnum úrtöku fái þátttökurétt í viðkomandi flokki. Var það tilraun til að koma til móts við hinar nýju hugmyndir sem fram koma í tillögunni.

Þegar ganga átti til kosninga um hina nýju tillögu sagði fundarstjóri hana óþingtæka þar sem hún kæmi ekki frá nefndum, ný tillaga hefði þurft að berast innan tiltekins tíma.

Tillaga 30 var einnig felld af þingu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link