Brimfaxi gengur í LH
Hestamannafélagið Brimfaxi gengur inn í Landssamband hestamannafélaga á næstu vikum.
Brimfaxi er hestamannafélag Grindavíkur og hefur aðsetur í Dagmálaholti og var stofnað þann 25. mars 2010. Stofnfélagar félagsins er 64 talsins og er formaður þess Pétur Bragason.
Samkvæmt heimasíðu Brimfaxa er tilgangur félagsins að efla áhuga á hestum og hestaíþróttum í Grindavík og jafnframt gæta hagsmuna félaga sinna á því sviði. Einnig mun félagið stuðla sérstaklega að fræðslu og þjálfun unglinga og barna í hestaíþróttum. Fyrirhugað er að byggja reiðhöll á félagssvæðinu.
Brimfaxi mun vera 48. hestamannafélagið sem heyrir undir Landssamband hestamannafélaga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH