Bróðir Spuna kemur á Stóðhestadaginn
Bróðir heimsmeistara Spuna mun sýna sig á Stóðhestadegi Eiðfaxa sem fer fram á félagssvæði hestamannafélagsins Sleipnis á Brávöllum, Selfossi nk. laugardag 28. apríl.
Sýndir verða nokkrir ódæmdir efnilegir folar. Þar á meðal er Sæmundur frá Vesturkoti, undan Sædyn frá Múla og Stelpu frá Meðalfelli, móður Spuna frá Vesturkoti.
Stefnt er á að fara með Sæmund fyrir dóm í vor og geta gestir Stóðhestadagsins spáð í þetta stjörnuefni áður en hann verður lagður fyrir dóm.
Allar nánari upplýsingar um Sæmund gefur Hulda Finnsdóttir í síma 698-7788 eða gegnum netfangið [email protected].
Athugið að frír aðgangur er að allri dagskrá Stóðhestadagsins sem hefst kl. 14.
Allir velkomnir!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH