Brotin en ber sig vel

  • 27. júní 2012
  • Fréttir
Brotin en ber sig vel

„Ég get ekki keppt það sem eftir er sumarsins. Það er það sem mér finnst verst,“ segir Berglind Ragnarsdóttir en hún þríviðbeinsbrotnaði þegar hún féll af hesti sínum, Frakki frá Laugavöllum í milliriðlum B-flokki gæðinga í gær.

Á vefmiðlinum Vísi.is má nálgast viðtal við Berglindi sem ber sig vel eftir óhappið. „Þetta er tímamótamót. Þetta er flottasta umgjörð sem hefur verið á Landsmóti. Við viljum hafa Landsmót þar sem aðstaða fyrir hesta og menn er til fyrirmyndar,“ segir hún um landsmótið í Reykjavík.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link