Brottfluttir stóðhestar áberandi
Þegar kynbótamatið fyrir stóðhesta með 15-49 sýnd afkvæmi er skoðað þá er áberandi hve margir útfluttir stóðhestar eru ofarlega á listanum. Það á reyndar ekki við um efsta hestinn Kvist frá Skagaströnd en næstu hestar eru fæddir hér á landi en voru fluttir út fyrir alllöngu síðan. Annar á listanum er Orrasonurinn Lykill frá Blesastöðum 1A en engin afkvæmi hans eru til hér á landi. Þriðji hestur á listanum er Keilirssonurinn Ísar frá Keldudal en um tuttugu afkvæmi hans fæddust hér heima. Fjórði er svo Orrasonurinn Trúr frá Auðsholtshjáleigu sem skilur flest afkvæmi eftir sig hér á klakanum af fyrrnefndum hestum.
Þrír hestar verða sýndir til 1.verðlauna fyrir afkvæmi á næsta Landsmóti en það er fyrrnefndur Kvistur en auk hans eru það Kiljan frá Steinnesi sem er tólfti á listanum og Ómur frá Kvistum sem er í tuttugasta sætinu.
Það verður gaman að fylgjast með afkvæmahópi þeirra en samkvæmt reglum þá eiga sex afkvæmi að fylgja hverjum hesti.
Hér er listi efstur hesta:
Nafn og uppruni Sköpl Hæfl Aðale Afkv
Kvistur frá Skagaströnd 123 122 126 19
Lykill frá Blesastöðum 1A 118 124 126 20
Ísar frá Keldudal 115 124 126 35
Trúr frá Auðsholtshjáleigu 113 125 126 17
Arður frá Brautarholti 118 123 125 36
Glotti frá Sveinatungu 107 126 125 18
Hrafnfaxi frá V-Geldingaholti 118 121 124 28
Blær frá Torfunesi 118 122 124 35
Sjóli frá Dalbæ 116 120 123 17
Djáknar frá Hvammi 109 121 122 20
Starri frá Hvítanesi 115 120 122 26
Kiljan frá Steinnesi 110 120 121 15
Flipi från Österåker 125 116 121 42
Jarl frá Miðkrika 125 115 121 46
Aðall frá Nýjabæ 114 119 121 34
Sólon frá Skáney 120 117 121 32
Víðir frá Prestsbakka 118 118 121 18
Hnokki frá Fellskoti 118 116 120 16
Glitnir frá Strandarhöfði 114 117 119 18
Ómur frá Kvistum 109 117 118 22
Glymur frá I-Skeljabrekku 96 121 118 33
Dökkvi frá Mosfelli 120 114 118 42
Víglundur frá V-Fíflholti 105 119 118 19
Þytur frá Neðra-Seli 106 118 118 23
Akkur frá Brautarholti 99 121 118 21
Hraunar frá E-Rauðalæk 115 116 118 19
Frami från Häringe 1 09 117 118 22
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson