Búgreinaþing deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands

  • 15. febrúar 2022
  • Fréttir
Áður nefnt Félag hrossabænda er nú deild hrossabænda innan Bændasamtaka Íslands

„Sú breyting var samþykkt á aðalfundi Félags hrossabænda 11.des s.l að félagið flytti starf sitt formlega yfir í Bændasamtök Íslands um áramótin sl., sem þýðir að áður nefnt Félag hrossabænda er nú, Deild hrossabænda innan Bændasamtaka Íslands. Það þýðir í raun ekki mikla breytingu á starfi eða áherslum félagsins, en það er breyting á aðild félagsmanna. Þau sem áður voru félagar í Félagi hrossabænda færast ekki sjálfkrafa yfir í Deild hrossabænda, heldur þarf fólk að skrá sig sjálft. Þau sem stunda blandaðan búskap skrá sig í deildir innan BÍ eftir hlutfallslegu umfangi í hverri grein.

Búgreinaþing 3-4. mars

Samkvæmt samræmdu starfi innan Bændasamtakanna þá munu öll búgreinafélögin halda sín búgreinaþing (aðalfundi) 3-4. mars, en formleg setning fundarins verður 3. mars. Búgreinaþing hrossabænda verður haldið 4 mars. Allir félagar í Deild hrossabænda eiga seturétt á þinginu (en þurfa að skrá sig, sjá leiðbeiningar).  Dagskrá fundarins verður kynnt betur síðar.

Félagsaðild BÍ

Þeim félögum úr Félagi hrossabænda sem ekki hafa skráð sig í Deild hrossabænda innan BÍ, gefst kostur á að skrá sig til og með 16. febrúar og öðlast þannig seturétt á þinginu (aðalfundinum) sem haldinn verður 4.mars. Þetta er gert á grunni þess að viðkomandi hafi greitt félagsgjald í Félag hrossabænda á síðasta ári.

Skráning á Búgreinaþing er til og með 16. febrúar

Félagar í félagi hrossabænda sem vilja sækja búgreinaþing 4. mars þurfa að:

  • Skrá sig á Búgreinaþing inn á www.bondi.is til og með 16. febrúar.
  • Skrá sig í Bændasamtökin til og með 16. febrúar inni á www.bondi.is / Bændatorg
  • Þeir sem vilja senda inn mál til umfjöllunar á Búgreinaþingi skulu gera það í síðasta lagi 16. febrúar.

Þeir sem vilja fá aðstoð við skráningu í BÍ geta haft samband við Guðrúnu Birnu í síma 563-0300 eða á netfangið [email protected]

Búnaðarþing verður haldið 31. mars – 1. apríl.
Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands verður haldið dagana 31. mars -1. apríl á Hótel Natura í Reykjavík. Deild hrossabænda mun kjósa 2 fulltrúa til setu á Búnaðarþingi á Búgreinaþinginu.“

M.bestu kveðju
f.h hrossabænda
Sveinn Steinarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link