Búið að opna fyrir skráningu í uppboðssæti í fjórgang
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur sent frá sér tilkynningu um að opið sé fyrir skráningu í uppboðssæti í fjórgangskeppni deildarinnar. Keppt verður í fjórgangi fimmtudaginn, 25. janúar, næstkomandi.
Skráningarfrestur er til þriðjudags 23. janúar kl. 12:00. „Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á [email protected],“ segir í tilkynningunni.
Lög deildarinnar segja til að einn einstakur knapi geti keypt sér keppnisrétt. Ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Ef hæstu boð eru jöfn munu allir knaparnir keppnisrétt. Hægt er að nálgast reglur deildarinnar HÉR.
„1.6 Einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt í hverri grein sem aukaknapi í deildinni. Hann vinnur sér ekki inn stig nema ef knapi sé í liði í deildinni þá safnar hann stigum í einstaklingskeppninni. Þátttökugjald er 50.000 kr án VSK, vilji fleiri en einn taka þátt mun hæstbjóðandi kl 12 á hádegi á skráningardegi gilda. Meðan að tilboð eru að berast inn þá upplýsir stjórn bjóðendur ef að hærra tilboð en það sem er hæst hverju sinni berst. Ef fleiri en eitt tilboð eru jöfn þegar að skráningu lýkur þá öðlast þau öll keppnisrétt. Stjórn skal samþykkja knapa.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH