„Býð alla hjartanlega velkomna í dalinn í næstu viku“
Frá ræktunardegi Eiðfaxa í Víðidalnum, Eldur frá Torfunesi og Sigurbjörn Bárðarson mynd: Gunnar Freyr
Reykjavíkurmeistaramót hefst á mánudaginn í næstu viku og stendur fram á sunnudag. Um er að ræða að öllum líkindum fjölmennasta íþróttamót ársins og verður nóg að gera hjá starfsfólki og sjálfboðaliðum alla næstu viku.
Eiðfaxi hafði samband við Hildu Karen mótsstjóra og spurði hana nokkurra spurninga er varða framkvæmd mótsins og því hverju fólk má búast við í næstu viku.
Hvað þarf að hafa í huga við undirbúning móts af þessari stærðargráðu?
,,Fákur er með sterkan hóp í mótahaldinu og er með öfluga stjórn sem stendur þétt að baki honum. Það þarf að gera góða greiningu á hinum ýmsu einingum sem leggja grunninn að góðum viðburði. Við þekkjum hópana vel sem sækja mótið og markmiðið er skýrt, að halda glæsilegt hestaíþróttamót. Það þarf að gera sterka kostnaðaráætlun og reyna að sjá fyrir allan kostnað og allar tekjur mótsins. Það er mikilvægt, ekki síst þegar hugsað er um alla þá sem gefa félaginu vinnu sína, þá er nauðsynlegt að framlag fólks skili einhverjum smá tekjum til félagsins en ekki tapi. Það þarf að huga að mótssvæðinu, völlum og umgjörð í heild sinni. Við viljum bjóða keppendur og gesti velkomna á glæsilegt svæði og hafa stemninguna hátíðlega og upplifunina jákvæða og ferska. Við erum heppin með mótssvæðið okkar sem sennilega er eitt það allra glæsilegasta í heimi hestaíþróttanna. Það höfum við skapað og bætt í á hverju ári í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg. Mótshaldarar þurfa að vera sterkir á svellinu þegar kemur að öllum lögum og reglum er varða keppni og mótahald almennt. Það veitir ákveðið öryggi og góðan grundvöll að samstarfi þeirra við keppendur, forráðamenn, dómara og annað starfsfólk.Tímasetningar og dagskrá skipta miklu máli og allir sem að mótinu koma þurfa að leggjast árar til að svona löng dagskrá gangi upp. Það mun okkur takast hér eftir sem hingað til, enda hafa hlutirnir yfirleitt tilhneigingu til að leysast!“
Hversu margir starfsmenn/sjálfboðaliðar munu koma að mótinu?
,,Mannauðurinn er einn af lykilatriðum þess að viðburður gangi vel. Hér er hópur sjálfboðaliða sem skráir sig á vaktir í dómpalli, í dómhring, við þulastörf, í fótaskoðun, við kaffiumsjón og ýmis önnur þjónustu- og afgreiðslustörf. Sennilega telur hópurinn um sjötíu manns í heildina og hver og einn leggur til þá vinnu sem hann getur. Um 15 sjálfboðaliðar eru á vaktinni hvern klukkutíma mótsins og dagskráin telur 75 klst og það er einfalt dæmi sem segir okkur að framlag sjálfboðaliða á þessu eina móti er 1125 klst hvorki meira né minna. Nú svo geta spekingar reiknað áfram, hvað vilja menn reikna sér í laun á tímann? Þetta er ótrúlegt fólk og við búum vel í Fáki, og skemmtum okkur konunglega við þessi verkefni. Þess má geta að nöfn allra sjálfboðaliða sem taka þátt í mótinu fara í vígalegan happdrættispott og dregið verður úr honum við gott tækifæri á mótinu. Vinningarnir verða glæsilegir, enda eru fyrirtæki yfirleitt viljug að styðja við sjálfboðastarf.““
Hverju mega þeir sem gera sér ferð í Víðidalinn í næstu viku búast við?
,,Fyrst og fremst verður mótið gríðarsterkt í öllum flokkum. Okkur nördunum sem fylgjumst kannski mest með keppni í efsta klassa hestaíþróttanna, hættir til að horfa bara á meistaraflokk og 1. flokk en það er alveg svakaleg þróun er í gangi þessi misserin í yngri flokkunum og flokkum áhugamanna og það er svo spennandi að verða vitni að því! Í heildina eru skráningar rétt um 890 talsins og ljóst að hér verður fjölbreytt mót þar sem keppendur á öllum aldri taka þátt, frá 10 ára og uppúr, eða hvað er Elli Sig aftur orðinn gamall? Hann er 77 ára og eldsprækur og hann mun mæta með Hnikar sinn í 150 metrana og keppa við þá fljótustu þar. Ég er alla vega orðin verulega spennt að sjá keppendur í braut á Hvammsvellinum á mánudaginn og býð alla hjartanlega velkomna í dalinn til að deila gleðinni með.“
Reykjavíkurmeistaramótið hefst á mánudaginn en dagskrá má nálgast með því að smella hér.

Hilda Karen Garðarsdóttir Mótsstjóri
Styttu haustið með EiðfaxaTV