CocaCola mótaröðin
Æskulýðsnefnd Sörla stendur fyrir Coca Cola mótaröðinni í vetur:
Nú er komið að hinni árlegu smalakeppni æskulýðsnefndar Sörla og að þessu sinni höfum við fengið Coke í lið með okkur og þeir ætla að bjóða upp á drykki og verðlaun.
Mótið er opið öllum og kostar ekkert að keppa. Við höfum fengið Kristján Jónsson til að koma og hjálpa okkur við uppsetningu á brautinni.
Í ár verður keppt í eftirfarandi flokkum: pollar, börn, unglingar og ungmenni/fullorðnir.
Laugardaginn 28. Janúar kl. 14.00 í reiðhöllinni á Sörlastöðum. Skráning verður á netfanginu [email protected], taka fram flokk og félag.
Lokaskráning er á föstudaginn 27. janúar.
Skemmtanagildið verður haft í fyrirrúmi.
Dagskrá:
- Pollar yngri en 10 ára
- Börn 10 – 13 ára
- Unglingar 14 – 17 ára
- Ungmenni / fullorðnir eldri en 18 ára
Tökum öll þátt og skemmtum okkur saman!
Æskulýðsnefnd Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári