Dagskrá Heimsmeistaramótsins í Sviss
Mótshaldarar hafa gefið út drög að dagskrá fyrir mótið en eins og oft áður hefst mótið á þriðjudegi.
Mótsvæðið opnar á mánudeginum en kynbótasýning og keppni í gæðingaskeiði fer fram á þriðjudeginum. Á miðvikudegi hefst síðan keppni á hringvelli.
Hér fyrir neðan eru drög að dagskránni en hún getur tekið breytingum eftir að skráningu liða er lokið í júlí 2025.
Sunnudagur, 3. ágúst
- Boðreiðin kemur á mótsstað.
Mánudagur, 4. ágúst
- Mótsvæðið opnar
Þriðjudagur, 5. ágúst
- Opnunarhátíð
- Kynbótadómar: Hæfileikadómar.
- Íþróttakeppni: Gæðingaskeið PP1
Miðvikudagur, 6. ágúst
- Íþróttakeppni: Tölt T1 og slaktaumatölt T2
Fimmtudagur, 7. ágúst
- Kynbótadómar: Hæfileikadómar
- Íþróttakeppni: Fimmgangur F1 og 250 m. skeið P1
Föstudagur, 8. ágúst
- Kynbótadómar: Hæfileikadómar
- Íþróttakeppni: Fjórgangur V1 og 250 m. skeið P1
Laugardagur, 9. ágúst
- Kynbótadómar: Kynning og verðlaunafhending
- Íþróttakeppni: Flugskeið P2 og úrslit
Sunnudagur, 10 ágúst
- Kynbótadómar: Kynning og verðlaunafhending
- Íþróttakeppni: Úrslit
- Verðlaunaafhending og lokahóf.