Daníel Gunnarsson knapi ársins hjá Skagfirðingi

Knapi ársins 2023 Daniel Gunnarsson Ljósm: Freydís Bergsdóttir
Árshátíð og uppskeruhátíð Skagfirðings fór fram á föstudag á Kaffi Krók. Eins og venja er voru knapar ársins hjá félaginu verðlaunaðir. Hér fyrir neðan má lesa um útnefnda knapa í hverjum flokki ásamt hluta af þeirra árangri í sumar.

Skagfirðingur hefur í nokkur ár verðlaunað félagsmann ársins, en það er sá félagsmaður sem hefur að óeigingirni og dugnaði verið boðinn og búinn til að sinna hinum ýmsu störfum og tekið þátt í félagsstarfinu að mikilli jákvæðni svo eftir er tekið. JÁ manneskja okkar í ár er Hörður Þórarinsson. Nú í ár geta krakkarnir okkar í æskulýðsdeildinni leigt hesta á námskeið félagsins og sér Hörður um umhirðu og hýsingu hrossana ásamt því að vera til taks fyrir krakkana fyrir námskeiðin, hann sér einnig um félagsheimilið okkar Tjarnarbæ og er okkar maður í reiðhöllinni Svaðastöðum.

Félagsmaður ársins Hörður Þórarinsson Ljósm: Freydís Bergsdóttir
Hann á fjórða (21.76) og sjötta (21.99) besta tímann í 250m skeiði í ár með systurnar Einingu og Kló frá Einhamri.
Á Íslandsmóti var hann í þriðja og sjötta sæti í 250m skeiði, 2.sæti Meistaradeildar Líflands í 150m skeiði, 2.sæti í 150m skeiði Meistaradeildar KS og siguvegari gæðingaskeiðs.
Hann var valinn í landslið Íslands á Heimsmeistaramótið og var fulltrúi félagsins í Hollandi þar sem hann og Eining enduðu í öðru sæti í 250m skeiði.

Skeiðknapi og Knapi ársins Daniel Gunnarsson Ljósm: Freydís Bergsdóttir

Sigurður Heiðar Birgisson hlaut viðurkenningu frá félaginu í ár fyrir framúrskarandi árangur sinn með Hrinu frá Hólum Ljósm: Freydís Bergsdóttir

Knapi ársins í áhugmannaflokk Þóranna Másdóttir & aðstoðarkona Ljósm: Freydís Bergsdóttir

Knapi ársins í ungmennaflokki Þórgunnur Þórarinsdóttir Ljósm: Freydís Bergsdóttir

Íþróttaknapi ársins Mette Mannseth, Gísli Gíslason tók við verðlaunum. Ljósm: Freydís Bergsdóttir

Gæðingaknapi ársins Skapti Steinbjörnsson Ljósm: Freydís Bergsdóttir
