Davíð Ólafsson veislustjóri á Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga verður haldin þann 6.nóvember nk. á Broadway…
Miðasala fer fram á Broadway, Ármúla 9, 108 Reykjavík, s: 533-1100 og á netfanginu: [email protected]
Hátíðin verður með hefðbundnu sniði, þ.e. þriggja rétta glæsilegur málsverður, veitt verða knapaverðlaun, skemmtidagskrá og dansleikur fram eftir nóttu þar sem Helgi Björns mun trylla lýðinn.
Veislustjórn verður í höndum hins landskunna Davíðs Ólafssonar, undrabassa og skemmtikrafts.
Verð fyrir matinn og ballið er 7.500kr. en 2500kr. bara fyrir ballmiða.
Það er ljóst að hestamenn ætla að fjölmenna á Uppskeruhátíðina sem haldin er af Landssambandi hestamannafélaga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH